Ýmsar fréttaljósmyndir frá stríðsárunum. Má sjá á þeim merkingar fyrir prentun, flestar eru svokallaðar wirephoto þannig að gæðin eru ekki alltaf sem best.
2 af 7 Þýskum flugliðum úr Fw 200 Condor flugvélsem var skotin niður af P38 norður af Grímsey þann 5 ágúst 1943 boðnir velkomnir af herlögreglumanni á 15 tungumálum.
Dyttað að bragga í einu af herskálahverfum bandarískra landgönguliða 1941.
Eldsneytistankur settur á land í Reykjavík 1943, vel merktur bandaríska flughernum en hann var hluti af landhernum á þessum tíma.
Sjórinn er sléttur í janúar 1942 þegar þessi eftirlitsskip bandaríska sjóhersins liggja við akkeri.

14 bandarísk herskip sjást gegnum gaddavírsflækjuna á ytri höfninni í Reykjavík.

Hér sést yfir höfnina í Reykjavík, á vinstri hönd er Bernh. Petersen. Eins og má sjá er mikið að gera í uppskipun, trúlega í ágúst 1941
Bandarískir hermenn stíga á land í Reykjavík.
Kanadískir hermenn að byggja Nissen bragga í Reykjavík 1940.
Breskir flugmenn úr áhöfn flugvélarinnar Spirit of Lockheed fylgjast með Íslendingum flytja birgðir yfir á. Flugvélin var gjöf starfsmanna Lockheed flugvélaverksmiðjanna til Breta.

Bren carrier í Reykjadal í Mosfellssveit við æfingar með Bren .303 vélbyssum.
Gufumökkinn leggur upp frá Suður-Reykjum í Mosfellssveit 1943.

Búðir bandarískra landgönguliða við Úlfarsfell, en samkvæmt texta á myndinni voru 12-14 manns í hverjum bragga.
Liðsmenn 10th Infantry Regiment í Camp Lambton Park á Reykjamelum haustið 1941.
Bresk virkjagerðarsveit flytur tvær 6 tommu fallbyssurnar upp í Dalsminni haustið 1940.

Liðsmenn 46th Artillery Battalion, sem hafði m.a. aðsetur í Camp Clayton sem var áfastur og vestan við Camp Lambton Park, með 75mm fallbyssu haustið 1941.
Úr „Sacred Hill Hospital“ sem var Helgafellsspítali en spítalinn var hitaður upp með vatni frá Reykjum, á myndinni má sjá hitaveiturörin.
Önnur mynd frá tómstundaaðstöðu í Helgafellsspítala 1943.
Bandarískir hermenn í Kollafirði, eru með M1917a1 hjálma og búnir að setja upp Browning M1919 .30-06 vélbyssu.
Breskur Nissen braggi í Mosfellssveit
Amerískir landgönguliðar raða sér upp fyrir liðskönnun, á myndinni eru þeir með m1917a1hjálma og Browning m1903 riffla í cal .30-06.
Vetur í Trípolí-kampi við Suðurgötu í Reykjavík.
Varðganga um vetur, trúlega fyrir norðan (endilega sendið mér póst ef eitthvað má betur fara)
Bren-fallbyssuvagnar í Þelamörk Hörgárdal, takið eftir ísbjarnarmerkinu fyrir ofan ljósið.
Bandarískur flugmaður fær nudd eftir langt eftirlitsflug 1943.
Bresk lúðrasveit spilar á Arnarhóli.
Vopnabræður heilsast. Breskir hermenn og bandarískir landgönguliðar fyrir utan Y.M.C.A. bragga 1941.
Anton Mynarek loftskeytamaður úr Ju-88 könnunarvél sem var skotin niður af 50. orustuflugsveitinni 24. apríl 1943.
Lockheed Hudson úr konunglega breska flughernum (Coastal Command) á könnunarflugi haustið 1942.
Bandarískir hermenn ylja sér við kolaofn.
Bandaríkjamenn stíga á land, það má glöggt sjá hvernig myndin hefur verið lituð til að skýra allar útlínur.
Winston Churchill á göngu við Alþingishúsið í heimsókn sinni til Íslands 16. ágúst1941.
Winston Churchill við hersýningu í heimsókn sinni til Íslands 16. ágúst 1941. Fyrst fóru í skrúðgöngunni fyrirmenn hersins, þar á eftir kom hljómsveit, síðan bandaríski landherinn, bandaríski flotinn, bandaríski flugherinn, ástralskir flugmenn, nýsjálenskir flugmenn, því næst breski landherinn, breski flugherinn, norska sveitin og síðast breski sjóherinn. Með Churchill á pallinum eru John Dill, yfirmaður herforingjaráðsins breska, D. Pound, æðsti foringi breska flotans, G. Freemann, varayfirforingi breska flughersins, A. Cadogon, yfirskrifstofuforingi í utanríkismálaráðuneytinu, og Franklin D. Roosevelt, Jr. sonur Bandaríkjaforseta. Við pallinn stóðu m.a. sendiherrar erlendra ríkja. Var herfylkingin um klukkustund að ganga fram hjá palli Churchills.
Winston Churchill og Franklin D. Roosevelt, Jr
Churchill heilsar hermönnum.
Bandarískir hermenn stíga á land í Reykjavíkurhöfn.
Bandarískur landgönguliði hefur samband við höfuðstöðvar gegnum talstöð sem hann ber á bakinu.
Bandarískir hermenn við guðþjónustu utandyra.
Breskir flugliðar fylgjast með þegar Lockheed Hudson vél kemur inn til lendingar, eða er að taka á loft.
Bell P-39 Airacobra stendur á flugvellinum en hún var sérstök fyrir þær sakir að mótorinn var fyrir aftan flugmanninn en vopnabúnaður vélarinnar var í nefi hennar sem var 37mm fallbyssa, einnig voru vélbyssur í vængjum.
Bandarískir hermenn lesa fréttir, á bakvið þá glittir í blaðsöludrenginn.
Privade Thompson er listamaðurinn.
H.O. Curtis setuliðsforingi heilsar Major General Charles Bonesteel við komuna til landsins.
Hvast í camp Pershing sem var í Sogamýri , þetta var óveður sem gekk yfir 15 janúar 1942. Það má sjá að braggi er að liðast í sundur á myndinni. Nú er þetta svæði Rauðagerði.
Pálmatré á Íslandi, já þessi kampur var við Nauthólsvík á vegum Bandaríska flotans og hét Camp Kwitcherbelliakin (Quit your belly aching) eða hættu þessu væli . Þessi mynd er tekinn sept/okt 1942.
Kanadískir hermenn æfa í Hafnarfirði
Stormur í Hvalfirði.